Heildarmynd af framkvæmdum – frá upphafi til enda


Við byggingarframkvæmdir er margt sem hverfur sjónum eftir því sem verkinu miðar áfram. Lagnir fara á bak við veggi, járnabinding hverfur undir steypu og ýmis konar frágangur byrgir sýn á það sem áður blasti við.



Með Myndsjá 360 býður JTV upp á reglubundna, stafræna myndskráningu framkvæmda sem varðveitir upplýsingar um alla þessa hluti sjónrænt og gerir þær aðgengilegar á einum stað.

Allt verkefnið aðgengilegt


Myndsjá 360 byggir á vikulegri 360° myndatöku á framkvæmdastað, ásamt myndatökum með dróna eftir umfangi og eðli verkefna. Myndirnar eru allar dagsettar og tengdar við staðsetningar á teikningum, þannig að hægt er að fylgjast með framvindunni, bera saman myndir af sama rými á mismunandi tímum og skoða hvernig framkvæmdin hefur þróast.



Þannig verður til samfelld myndræn saga verksins sem nýtist á ýmsan máta, bæði meðan á framkvæmdum stendur og löngu eftir verklok

Hvað er innifalið í þjónustunni?

Reglubundin 360° myndataka

Starfsfólk JTV kemur á framkvæmdastað í hverri viku og myndar rými á fyrirfram skilgreindum stöðum.

Drónamyndataka

Drónar veita yfirsýn yfir framkvæmdasvæðið og gera kleift að afla yfirlitsmynda eftir þörfum.

Aðgengileg og skipulögð skráning

Verkkaupi, hönnuðir og verktakar hafa aðgang að myndasafni framkvæmdarinnar á einum stað.

Varðveisla gagna

Verkkaupi fær gögnin afhent við verklok og JTV varðveitir myndskráninguna í fimm ár.

Upplýsingar sem halda gildi sínu


Myndsjá 360 veitir verkkaupa betri yfirsýn yfir framkvæmdina og auðveldar honum að rekja hvernig einstök verk voru unnin.

Myndskráningin getur reynst sérlega gagnleg við úttektir, viðhald, breytingar á húsnæði og þegar skera þarf úr um hvað var gert á tilteknum tíma.



Það sem á endanum verður falið á bak við veggi, undir gólfum eða í öðrum lokuðum hlutum bygginga er þannig áfram sýnilegt í myndasafni verksins.

Þjónusta byggð á reynslu


JTV hefur sinnt reglubundinni myndskráningu framkvæmda frá árinu 2020. Á þeim tíma hefur fyrirtækið tekið yfir 300 þúsund myndir í tengslum við 78 verkefni.



Þjónustan byggist því á víðtækri reynslu af eftirliti með framkvæmdum, myndatöku og skipulagðri skráningu upplýsinga.

Við sjáum um skráninguna


JTV annast allan undirbúning, myndatöku og skráningu. Verkkaupi og samstarfsaðilar hans hafa aðgang að myndasafni framkvæmdarinnar án þess að þurfa að halda utan um myndatökuna.



Myndsjá 360 er í boði sem mánaðarleg þjónusta sem varir allan verktímann og tekur mið af umfangi framkvæmdarinnar.

Viltu vita meira um Myndsjá 360?

Hafðu samband við JTV og kynntu þér hvernig reglubundin myndskráning getur nýst í þínum framkvæmdum.

Hafa Samband