Almennir fyrirvarar JTV ehf.

1. Gildissvið


Fyrirvarar þessir gilda um alla starfsemi, ráðgjöf, áætlanagerð, greiningar, samskipti og önnur gögn sem JTV veitir í tengslum við verkefni á sviði framkvæmdastjórnunar og mannvirkjagerðar, nema annað sé sérstaklega samið skriflega.


2. Eðli ráðgjafar


JTV er ráðgjafarfyrirtæki á sviði framkvæmdastjórnunar og almennrar ráðgjafar í bygginga og framkvæmdamarkaði á Íslandi. Ráðgjöf JTV felur ma. í sér faglegt mat og leiðbeiningar byggðar á:

  • Fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum
  • Umfangi og skilgreiningu verkefnis
  • Hönnunarstigi hverju sinni
  • Markaðsaðstæðum


Reynslu og faglegri þekkingu starfsmanna Ráðgjöf JTV felur ekki í sér:

  • Ábyrgð á framkvæmd verktaka
  • Ábyrgð á frammistöðu undirverktaka
  • Fjármögnunarábyrgð
  • Rekstrarábyrgð
  • Kostnaðarábyrgð eða ábyrgð á endanlegri niðurstöðu verkefna


JTV ber ekki ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru af verkkaupa eða öðrum aðilum á grundvelli ráðgjafar.


3. Áætlanir og forspár


Allar áætlanir JTV (þ.m.t. kostnaðar-, tíma-, framkvæmda- og áhættuáætlanir) eru faglegt mat byggt á forsendum og upplýsingum sem liggja fyrir á þeim tíma sem þær eru unnar.


Áætlanir fela ekki í sér:

  • Loforð eða tryggingu um niðurstöðu
  • Fast verð eða hámarkskostnað
  • Tryggingu fyrir afhendingartíma
  • Tryggingu fyrir útboðsniðurstöðu


Áætlanir gilda eingöngu miðað við skilgreindar forsendur og dagsetningu þeirra. Breytingar á umfangi, hönnun, markaði eða framkvæmd geta haft áhrif á niðurstöðu. Útg. 1.0/270226  1/3


4. Markaðs- og framkvæmdaráhætta


Byggingar- og mannvirkjagerð er háð óvissu og sveiflum sem JTV hefur enga stjórn á, þar á meðal, en ekki takmarkaðar við:

  • verðbreytingum á efni og vinnuafli
  • aðgengi að verktökum, birgjum oþh.
  • gjaldeyrissveiflum og efnahagsástandi
  • lagabreytingum og stjórnvaldsákvörðunum
  • aðstæðum á verkstað
  • frammistöðu þriðja aðila


Slíkir þættir geta haft áhrif á kostnað, tíma og framvindu verkefna án þess að teljast mistök af hálfu JTV.


5. Ábyrgðartakmörkun

JTV starfar samkvæmt íslenskum lögum og almennum samningsskilmálum um ráðgjöf á sviði mannvirkjagerðar.

Ábyrgð JTV takmarkast við tjón sem rekja má til sannaðra faglegra mistaka eða gáleysis við framkvæmd ráðgjafar.


JTV ber ekki ábyrgð á:

  • óbeinu eða afleiddu tjóni
  • rekstrartapi eða tekjumissi
  • fjármögnunarkostnaði
  • tafabótakröfum
  • kröfum sem rekja má til ákvarðana verkkaupa eða þriðja aðila
  • frávikum sem stafa af breyttum forsendum eða markaðsaðstæðum


6. Starfsábyrgðartrygging


JTV er með starfsábyrgðartryggingu samkvæmt gildandi vátryggingarskilmálum. Tryggingin tekur eingöngu til bótaskyldu vegna faglegra mistaka eða gáleysis og felur ekki í sér tryggingu fyrir árangri, kostnaði eða niðurstöðu verkefna. Útg. 1.0/270226  2/3


7. Notkun og dreifing gagna


Gögn, áætlanir, skýrslur og önnur efni JTV eru unnin fyrir tiltekinn verkkaupa og tiltekið verkefni.

Efni má ekki:

  • nýta í öðrum verkefnum
  • afhenda þriðja aðila
  • birta opinberlega
  • breyta eða endurnýta
  • án skriflegs samþykkis JTV.


Enginn annar en samningsaðili má reiða sig á efnið nema með skriflegu samþykki JTV.


8. Trúnaður og samskipti

Upplýsingar sem JTV fær í tengslum við verkefni eru meðhöndlaðar í samræmi við samningsskilmála og gildandi lög. Tölvupóstsamskipti og rafræn gögn geta innihaldið trúnaðarupplýsingar og eru eingöngu ætluð viðtakanda.


9. Hugverkaréttur

Hugverkaréttur að vinnugögnum, sniðmátum, greiningaraðferðum og verkferlum JTV er í eigu JTV nema annað sé sérstaklega samið. Verkkaupi fær heimild til að nýta gögn innan ramma þess verkefnis sem samið hefur verið um.


10. Samantekt

JTV veitir faglega ráðgjöf á sviði framkvæmdastjórnunar.

Ráðgjöf og áætlanir eru faglegt mat – ekki trygging fyrir niðurstöðu.

Verkkaupi ber fjárhagslega og rekstrarlega áhættu verkefna. Ábyrgð JTV takmarkast við fagleg mistök samkvæmt lögum og vátryggingarskilmálum.