
Góð stjórnun – lykillinn að góðu verki
Verkefnastjórnun framkvæmdaverka –
í stafrænum heimi
29. október 2026
Hilton Reykjavík
Ráðstefnur JTV
Á ráðstefnu JTV kemur fólk úr bygginga- og framkvæmdageiranum saman til að ræða hvernig góð verkefnastjórnun skilar betri verkum.
Hér geturðu rifjað upp ráðstefnurnar 2025 og 2026 og skoðað fyrirlestra, viðtöl og myndir.

2026
Á ráðstefnu JTV 2026 var fjallað um hvernig drónar, 360° myndatökur og gervigreind nýtast til að fylgjast með framvindu framkvæmda og hvernig gott samstarf og skýr ábyrgð hjálpa fólki að nýta upplýsingarnar í verki. Skoðaðu viðtöl og myndir frá ráðstefnunni.

2025
Á ráðstefnu JTV 2025 var fjallað um hvernig góð áætlanagerð og snemmbær aðkoma verkefnastjóra geta dregið úr áhættu og bætt ákvarðanatöku í framkvæmdum. Skoðaðu fyrirlestra, viðtöl og myndir frá ráðstefnunni.
SKRÁ MIG
Dagskrá
Setning ráðstefnunnar
12:30 - 13:00

Logi Einarsson,
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
Um Logi
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, setur ráðstefnuna og fjallar um mikilvægi þess að styrkja faglega þekkingu í íslenskum bygginga- og framkvæmdageira, hlutverk stjórnunar í því að tryggja betri gæði í opinberum og einkaframkvæmdum, og hvernig fagleg framkvæmdastjórnun getur stutt við nýsköpun og vöxt samfélagsins.
Ráðstefnustjóri
13:00 - 13:10

Brynja Þorgeirsdóttir
Ráðstefnustjóri
Velkomin
13:00 - 13:10
Opnunarræða og setning ráðstefnu

Jónas Halldórsson
Framkvæmdastjóri
JTV
Um Jónas
Jónas Halldórsson er stofnandi og framkvæmdastjóri JTV, leiðandi ráðgjafafyrirtækis í framkvæmdastjórnun á Íslandi. Hann er byggingarverkfræðingur og húsasmiður með yfir 20 ára reynslu í verkefnastjórnun, bæði á Íslandi og erlendis. Hann starfaði sem verkefnastjóri hjá NCC í Noregi, framkvæmdastjóri hjá LNS Saga og var hluti af verkefnastjórnarteymi Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss. Jónas hefur byggt JTV upp sem öflugt fyrirtæki sem leiðir inn nýja nálgun í framkvæmdastjórnun, m.a. með áherslu á BIM, stafrænar lausnir og fagmennsku sem tryggir árangur verkefna.
From Site Capture to Project Intelligence: Managing Visual Data Across Construction Projects
13:10 – 13:50
Reality capture is becoming a core part of how construction teams document, coordinate and manage projects. Amy Luscombe, Customer Success Manager at DroneDeploy, will explore how aerial and ground capture, from drones and 360 walkthroughs to AI-powered analysis, is helping teams create a clearer, more consistent view of progress on site. She will share practical examples of how the technology is being used today, what has changed in recent years, and where reality capture is heading next.

Amy Luscombe
Customer Success Manager, EMEA
DroneDeploy
Um Amy
Amy Luscombe starfar sem Customer Success Manager fyrir EMEA-svæðið hjá DroneDeploy og vinnur náið með viðskiptavinum í byggingar-, orku- og landbúnaðargeiranum við að tryggja að þeir nái sem mestu út úr reality capture-tækni fyrirtækisins – dróna- og vélmennalausnum sem gera fyrirtækjum kleift að fylgjast með framvindu verkefna í rauntíma. Hún gegnir lykilhlutverki í að styðja viðskiptavini frá innleiðingu og áfram, svo þeir nái sínum markmiðum með tækninni. DroneDeploy er einn stærsti hugbúnaðarvettvangur heims fyrir dróna- og vélmennagögn, með viðskiptavini í yfir 180 löndum.
Er þetta nýjasta útgáfan?
14:00 – 14:30
Auður Ástráðsdóttir fjallar um stór framkvæmdaverkefni, þar sem verða til gríðarlegt magn upplýsinga — líkön, teikningar, skjöl, samþykktir, breytingar, samskipti og mælingar. Tæknin hefur breyst mikið á síðustu áratugum en stærstu áskoranirnar snúast enn um fólk, ábyrgð, ferla og traust: Hver á upplýsingarnar? Hvenær eru þær gildar? Hvernig tryggjum við rekjanleika? Og hvernig komum við í veg fyrir að mikilvæg verkefnaþekking hverfi í tölvupósti, Excel-skjölum eða með einstaklingum þegar verkefninu lýkur? Hvernig getur opinber verkkaupi byggt upp - ekki bara mannvirki, heldur þekkingu sem lifir með þeim.

Auður Ástráðsdóttir
BIM Sérfræðingur | Verkefnastoð
Landsvirkjun
Um Auði
Auður er BIM sérfræðingur Landsvirkjunar. Hún er í grunninn byggingafræðingur en að auki með meistaragráðu í Building Information modeling and digital built environments (BIM) frá University of Manchester. Hún hefur komið víða við í mannvirkjageiranum, starfað sem mannvirkjahönnuður hjá ASK arkitektum um árabil, mótað starf BIM stjóra og sérfræðings og þróað verklag og ferla, bæði hjá Nýjum Landspítala og nú hjá Landsvirkjun.
Auður hefur lengi tekið þátt í starfi BIM Ísland og setið þar í stjórn á fjórða ár. Þar hefur hún staðið að og haldið; málstofur, fyrirlestraraðir ásamt því að undirbúa Dag stafrænnar mannvirkjagerðar (DSM) í þrígang.
14:30 – 14:45
Kaffihlé
Human Connection: Beyond AI
14:45 – 15:25
We will explore why human connection is vitally important in collaborative project delivery like CM and CMAR. We will experience all the things that connect us as humans based on the latest research. We will also find out what AI cannot do and why that human component is the key to project success.

Brent Darnell
Founder and Owner
Brent Darnell International
Um Brent
Brent Darnell is the founder and owner of Brent Darnell International, and one of the world's leading authorities on emotional intelligence in the AEC industry. A mechanical engineer from Georgia Tech, he spent years managing large construction projects before turning his focus to the human side of the industry, and has taught emotional intelligence to AEC professionals since 1999. He is the best-selling author of The People-Profit Connection and has worked with firms including Skanska, Balfour Beatty, and Kiewit. In his talk, Human Connection: Beyond AI, Brent draws on this experience to explore why human connection remains the key to project success, no matter how advanced our technology becomes.
Frá viðbrögðum til fyrirsjáanleika – þróun verkefnastjórnunar hjá Þarfaþingi
15:30 – 16:00
Erindið fjallar um hvernig verkefnastjórnun Þarfaþings hefur þróast samhliða vexti félagsins í sífellt stærri og flóknari verkefnum.
Farið verður yfir hvernig við höfum þróað verklag, stjórnun og eftirfylgni til að ná betri yfirsýn og meiri fyrirsjáanleika.
Sérstök áhersla verður á hvernig við reynum að horfa lengra fram í tímann, greina áhættur og hindranir áður en þær verða að vandamálum og vinna þannig markvisst og proaktívt.
Markmiðið er að sýna hvað þessi þróun hefur gert fyrir verkefnin okkar, starfsfólkið og félagið í heild.

Eggert Jónsson
Framkvæmdastjóri
Þarfaþing
Um Eggert
Eggert Jónsson er framkvæmdastjóri og annar tveggja eigenda Þarfaþings hf., byggingarfyrirtækis sem stofnað var árið 1993 og hefur höfuðstöðvar í Hafnarfirði. Undir hans stjórn hefur Þarfaþing vaxið úr því að vera viðhaldsþjónusta fyrir Hagkaup og tengd félög í að vera alverktaki í stórum útboðsverkefnum og eigin íbúðabyggingum. Fyrirtækið hefur um árabil verið með um 15 fastráðna starfsmenn og hlotið viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki í 14 ár samfleytt.
Á ráðstefnunni miðlar Eggert af reynslu sinni af rekstri og uppbyggingu í byggingariðnaðinum.
Loddaralíðan (e. imposter syndrome)
16:00 – 16:30
Baldur Sigurðsson fjallar um loddaralíðan (imposter syndrome) og hvernig hún getur birst hjá fólki á öllum stigum samfélagsins. Hann fer yfir eigin reynslu af því að takast á við efasemdir um eigin getu þrátt fyrir árangur og reynslu, og deilir hagnýtum ráðum um hvernig t.d. tæknin hefur hjálpað til við að vinna gegn henni og til að efla sjálfstraust, líðan og árangur í starfi.

Baldur Sigurðsson
Verkefnastjóri
JTV
Um Baldur
Baldur er verkefnastjóri hjá JTV ehf. og hefur umfangsmikla reynslu af verkefnastjórnun, framkvæmdastjórnun, hönnunarstjórnun og eftirliti með byggingarframkvæmdum á öllum stigum, bæði fyrir verktaka og verkkaupa. Hann hefur stýrt og unnið í fjölbreyttum og stórum verkefnum, m.a. nýju öryggisfangelsi að Stóra Hrauni, stækkun og endurbótum á Seðlabanka Íslands, byggingu leikskóla og hjúkrunarheimila, auk fjölda annarra verkefna víða um land.
Áður starfaði Baldur sem verkefnastjóri hjá Mannviti (nú Cowi) á árunum 2014–2022 eftir útskrift úr háskóla, en Baldur er með M.Sc. í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og er IPMA D vottaður verkefnastjóri.
Tengsla kokteill
16:30 – 18:00
Kokteilar í lounge
Ísland stendur frammi fyrir miklum framkvæmdum á næstu árum – allt frá nýjum innviðum og opinberum byggingum til íbúðauppbyggingar og atvinnumannvirkja. Reynslan sýnir að á öllum stigum framkvæmda geta komið upp áskoranir: tafir, kostnaðarfrávik, gæðavandamál og ófyrirséðar aðstæður.
Líkt og nauðsynlegt er að byggingar séu hannaðar og teiknaðar af fagfólki, er einnig þörf á faglegri verkefnastjórnun í framkvæmdaverkum. Með markvissri og faglegri stjórn aukum við líkurnar á að verkefni nái markmiðum sínum, minnkum hættuna á mistökum og tryggjum meiri gæði fyrir verkkaupa, iðnaðinn og samfélagið í heild.
Join our Team
Join our global remote team today.
Tagline
Position Title
This is a paragraph. Writing in paragraphs lets visitors find what they are looking for quickly and easily.
London
Remote
Tagline
Position Title
This is a paragraph. Writing in paragraphs lets visitors find what they are looking for quickly and easily.
London
Remote
Tagline
Position Title
This is a paragraph. Writing in paragraphs lets visitors find what they are looking for quickly and easily.
London
Remote

