Góð stjórnun – lykillinn að góðu verki

Verkefnastjórnun í framkvæmdaverkum


30. október 2025
Hilton Reykjavík Nordica

Ísland stendur frammi fyrir miklum framkvæmdum á næstu árum – allt frá nýjum innviðum og opinberum byggingum til íbúðauppbyggingar og atvinnumannvirkja. Reynslan sýnir að á öllum stigum framkvæmda geta komið upp áskoranir: tafir, kostnaðarfrávik, gæðavandamál og ófyrirséðar aðstæður.

Líkt og nauðsynlegt er að byggingar séu hannaðar og teiknaðar af fagfólki, er einnig þörf á faglegri verkefnastjórnun í framkvæmdaverkum. Með markvissri og faglegri stjórn aukum við líkurnar á að verkefni nái markmiðum sínum, minnkum hættuna á mistökum og tryggjum meiri gæði fyrir verkkaupa, iðnaðinn og samfélagið í heild.

Viðtöl


Setning ráðstefnunnar

12:30 - 13:00

Logi Einarsson,
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
  • Um Logi

    Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, setur ráðstefnuna og fjallar um mikilvægi þess að styrkja faglega þekkingu í íslenskum bygginga- og framkvæmdageira, hlutverk stjórnunar í því að tryggja betri gæði í opinberum og einkaframkvæmdum, og hvernig fagleg framkvæmdastjórnun getur stutt við nýsköpun og vöxt samfélagsins.

Jón Kolbeinn Guðjónsson
REITIR

Jón Kolbeinn Guðjónsson hjá Reitum talar um mikilvægi þess að verkefnastjórar noti verkefnatól sem mæla og styðja við markmið verkkaupa.


Ólafur Daníelsson
ÓD RÁÐGJÖF

Ólafur Daníelsson hjá ÓD ráðgjöf segir verkefnastjórnun vera mikilvæga til að allir séu á sama báti og rói í sömu átt.


Andrea S. Rutledge
CAE, President and ceo

Andrea S. Rutledge, CAE President & CEO, fjallar um þær breytingar sem nú eiga sér stað á hlutverki stjórnenda með mannaforráð.


Stephen DeVito
JTVCM-BIM

Stephen DeVito, tæknistjóri hjá Procon Consulting, talar um notkun á 360° ljósmyndatækni í byggingaframkvæmdum.


Fyrirlestrar


Setning ráðstefnunnar

12:30 - 13:00

Logi Einarsson,
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
  • Um Logi

    Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, setur ráðstefnuna og fjallar um mikilvægi þess að styrkja faglega þekkingu í íslenskum bygginga- og framkvæmdageira, hlutverk stjórnunar í því að tryggja betri gæði í opinberum og einkaframkvæmdum, og hvernig fagleg framkvæmdastjórnun getur stutt við nýsköpun og vöxt samfélagsins.

Technology in Facilities Management

Stephen DeVito
JTVCM-BIM

Stephen DeVito mun fjalla um hlutverk tækni í að bæta stjórnun alls lífsferils mannvirkja, frá hugmynd til reksturs og hvað það þýðir fyrir verkefnastjóra í framkvæmdum. Hann mun lýsa því hvar tækni skilar mestum ávinningi, hvaða ferlar þarf að styrkja og hagnýt skref til innleiðingar.

  • Um Stephan

    Stephen DeVito er Director of Technology hjá Procon Consulting í Bandaríkjunum og hefur meira en 20 ára reynslu af því að nýta upplýsingatækni og BIM til að bæta


    skilvirkni og gæði í bygginga- og fasteignageiranum. Hann hefur þróað BIM-staðla og innleitt stafræna ferla fyrir hönnun, framkvæmd og rekstur mannvirkja, m.a. fyrir US General Services Administration. Stephen er einn af lykilhöfundum National BIM Guide Series í Bandaríkjunum og hefur mikla sérþekkingu á því hvernig ný tækni getur umbreytt verkefnastjórnun og rekstri bygginga.


Verkefnastjórnun í mannvirkjagerð – Lærdómur í gegnum árin

Ólafur Daníelsson
ÓD RÁÐGJÖF

Ólafur Daníelsson byggir erindi sitt á eigin reynslu sem hönnuður, verkefnisstjóri og verkkaupi. Í erindinu fjallar hann um lærdóm úr byggingarframkvæmdum. Hann ræðir m.a. jafnvægi milli kostnaðar, tíma og umfangs, áhrif innkaupaleiða á samstarf og árangur, og áskoranir tengdar hönnun, framkvæmd og rekstri. Þá tekur hann fyrir mikilvægi skjölunar, áskoranir í lokafrágangi framkvæmda og mikilvægi þess að stuðlað sé að virkri þekkingaryfirfærslu milli ólíkra hópa.

  • Um ÓLAF

    Ólafur var framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum (FSRE) árin 2022-2025 og leiddi þar umfangsmikil innviða- og byggingarverkefni.



    Hann starfaði áður hjá EFLU (2005–2022), sat þar í framkvæmdastjórn frá 2020 og í stjórn EFLU AS frá 2021. Ólafur er byggingarverkfræðingur með B.Sc. í umhverfis- og byggingaverkfræði og M.Sc. með áherslu á hljóðvist og hávaðastjórnun frá Háskóla Íslands, með IPMA-C vottun í verkefnastjórnun, og hefur kennt hljóðvist og hávaðastjórnun við Háskólann í Reykjavík. 



    Hann hefur haldið fjölda erinda og birt greinar, m.a. á Internoise 2016, og er nú að hefja Executive MBA nám við UHI í Skotlandi.


Alþjóðleg þróun í framkvæmdastjórnun

Andrea S. Rutledge
CAE, President and CEO

Andrea Rutledge mun tala um mikilvægi sérfræðinga í verkefna- og framkvæmdastjórnun (program & construction management) og virði þeirra fyrir hvert verkefni, sérstaklega þegar þeir koma að verkinu snemma. Hún mun sýna hvernig snemmbær aðkoma bætir ákvörðunartöku, dregur úr áhættu og skilar meiri ávinningi.

  • Um Andrea

    Andrea Rutledge er forseti og forstjóri Construction Management Association of


    America (CMAA), samtaka með yfir 16.000 félagsmenn sem móta faglega


    framkvæmdastjórnun í Bandaríkjunum. Hún hefur yfir 30 ára reynslu í samtakastjórn,


    menntun og stefnumótun og hefur starfað sem framkvæmdastjóri National Architectural. Accrediting Board (NAAB) og sem stjórnandi hjá American Institute of Architects (AIA). Andrea er með CAE-vottun (Certified Association Executive) og er ötull talsmaður þess að fagmennska og góð stjórnun séu lykillinn að árangursríkum framkvæmdum.


Verkefnagát og áætlanir

Jón Kolbeinn Guðjónsson
REITIR

Jón Kolbeinn mun fara yfir verkefnagát og áætlanir, hvernig er hægt að fylgjast með hvert verkefni er að stefna miðað við áætlanir og hvernig virk verkefnastjórnun getur stuðlað að betri heilsu verkefna.

  • Um Jón

    Jón starfaði í nærri 10 ár hjá Isavia, fyrst sem verkefnastjóri framkvæmda og síðar sem deildarstjóri verkfræðideildar. Á þessum tíma stýrði hann ýmsum verkefnum tengdum stækkun og breytingum flugstöðvarinnar, farangurskerfum og öðrum innviðum. Megin áherslan var á hönnun, en einnig tók hann þátt í framkvæmdum. Jón var einnig aðild að stofnun verkefnagáttar og lagði grunn að verkefnastjórnun hjá Isavia.



    Hann hefur síðan verið framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Reitum í tæp þrjú ár, þar sem hann stýrir sviði sem ber ábyrgð á viðhaldi og framkvæmdum á eignasafni Reita.


Verkefnagát og áætlanir

Vala Björnsdóttir
JTV

Vala Björnsdóttir ræðir um mikilvægi þess að hafa góða stemningu í verkefnum og hvað hún sem verkefnastjóri getur gert til þess að stuðla að góðri stemningu til hagsbóta fyrir verkefnið.

  • Um Völu

    Vala er verkefnastjóri og hluthafi hjá JTV (frá 2018) með víðtæka reynslu af verkefnastjórnun, útboðum, verk- og gæðastjórnun á öllum stigum framkvæmda. Hún hefur stýrt fjölbreyttum verkefnum, m.a. íbúðarhúsnæði á Nónhæð, Íslandshótel við Lækjargötu, endurbótum á skrifstofuhúsnæðum, ýmsum sérframkvæmdum fyrir einkaaðila . Áður starfaði hún hjá Munck Iceland (LNS Saga) í innkaupastýringu og hjá Mannviti í verk- og kostnaðarstýringu stórra iðnaðarverkefna. Vala er byggingarverkfræðingur (B.Sc., HÍ) og hún stundaði einnig skiptinám við KTH í Stokkhólmi.


Ljósmyndir


Join our Team

Join our global remote team today.

Tagline

Position Title

This is a paragraph. Writing in paragraphs lets visitors find what they are looking for quickly and easily.

London

Remote


Tagline

Position Title

This is a paragraph. Writing in paragraphs lets visitors find what they are looking for quickly and easily.

London

Remote


Tagline

Position Title

This is a paragraph. Writing in paragraphs lets visitors find what they are looking for quickly and easily.

London

Remote