Áshamar 9
Fyrsti módúlaleikskóli í Hafnarfirði rís við Áshamar 9
Leikskólinn var settur saman á aðeins sex dögum – opnaði í byrjun apríl
Áshamar er leikskóli í Hamraneshverfi sem reistur var af fyrirtækinu Þarfaþingi hf. Bygging hans er ekki aðeins glæsileg viðbót við leikskólanet Hafnarfjarðarbæjar, heldur markar hún tímamót í byggingarsögu bæjarins. Áshamar er nefnilega fyrsti leikskólinn í Hafnarfirði sem byggður er með módúlabyggingaraðferð, þar sem forsmíðaðir módúlar voru settir saman á stuttum tíma með mikilli nákvæmni og skipulagi.
Leikskólinn er um 1.443 m² að stærð, hýsir sex deildir og getur tekið á móti allt að 120 börnum á aldrinum eins til sex ára. Hönnun hófst snemma árs 2024 og skólinn opnaði samkvæmt áætlun í byrjun apríl.
Módúlarnir: fullbúnar einingar og hröð uppsetning
Módúlarnir fóru í framleiðslu í byrjun september 2024 og komu til landsins í lok nóvember. Alls voru þetta 42 módúlar frá pólskum framleiðanda sem bárust til hafnar í Hafnarfirði föstudaginn 22. nóvember. Þarfaþing var búið að koma fyrsta módúlnum niður 27. nóvember og sá síðasti var settur á sinn stað aðeins sex dögum síðar sem sýnir hvað þessi byggingaraðferð getur skilað hraðri og skipulagðri uppbyggingu, ef rétt er farið að skipulagi.
Stærstu einingarnar voru allt að 12 x 4 x 4 metrar að stærð. Þær komu með öllu tilbúnu: gólfhiti lagður, loftræstikerfi og lagnir klárar – einungis eftir að tengja lokaútfærslur. Raflögnum var þegar búið að koma fyrir í veggjum og það eina sem stóð eftir var að draga að töflu og uppsetning lampa. Þessi aðferð tryggði mikla nákvæmni og verulega styttan framkvæmdatíma.
Verkefnastýring og skipulag lykilatriði
JTV sá um verkefnastýringu í heild fyrir Þarfaþing, sem fól í sér gerð kostnaðaráætlunar, verkáætlunar og náin eftirfylgni með öllum þáttum framkvæmda og hönnunar frá upphafi til enda. Mikla nákvæmni og skipulag þurfti til að tryggja samræmi í flutningi, uppsetningu og frágangi. Það hefur gengið eins og í sögu og leikskólinn tók á móti sínum fyrstu börnum aðeins fjórum mánuðum eftir að módúlarnir komu til landsins.
Barnvænt húsnæði og náttúrutengd nálgun
Leikskólinn við Áshamar er hannaður í L-laga formi utan um miðrýmið „Iðuna“, sem þjónar sem fjölnotasalur fyrir leik, sköpun og samveru. Deildirnar raðast tvær og tvær meðfram húsinu og hafa hver sína innganga. Þessi uppsetning stuðlar að skýrri skiptingu rýma og greiðu aðgengi að stoðrýmum. Öll hönnun miðast við þarfir barna – rýmin eru björt, litaglöð og hvetjandi, með stórum gólfsíðum gluggum og viðhaldslitlu efnisvali.
Byggingin er á einni hæð, með aðgengi fyrir alla samkvæmt kröfum um algilda hönnun. Rafdrifinn aðgangsbúnaður er við innganga og sérmerkt bílastæði eru fyrir hreyfihamlaða við hverja deild.
Leikskólinn við Áshamar er skýrt dæmi um hvernig nýjar byggingaraðferðir og framsæknar hugmyndir geta mætt brýnni þörf samfélagsins – og gert það með stæl.