Góð stjórnun ekki lúxus heldur nauðsyn

„Með markvissri og faglegri stjórn aukum við líkurnar á að verkefni nái markmiðum sínum.“

Ráðstefna um verkefnastjórnun í framkvæmdaverkum 2025 verður haldin á Reykjavik Hilton Nordica 30. október. Tilgangurinn með ráðstefnunni er að vekja athygli á mikilvægi fagmennsku í framkvæmdastjórnun á Íslandi að sögn Jónasar Halldórssonar, framkvæmdastjóra JTV, sem heldur ráðstefnuna.


„Eins og við vitum er grunnur að öllum byggingum eru góðir hönnuðir, ekki er hægt að treysta á tilviljanir, sama gildir um framkvæmdastjórnun. Góð stjórnun er ekki lúxus heldur nauðsyn, hún er lykilforsenda þess að framkvæmdir verði vel heppnaðar," segir Jónas.


Hann bendir á að Ísland standi frammi fyrir miklum framkvæmdum á næstu árum, allt frá innviðum og opinberum framkvæmdum til íbúðauppbyggingar og atvinnumannvirkja.

„Reynslan sýnir að á öllum stigum framkvæmda geta komið upp áskoranir: tafir, kostnaðarfrávik, gæðavandamál og ófyrirséðar aðstæður. Líkt og nauðsynlegt er að byggingar séu hannaðar og gerðar af fagfólki, er einnig þörf á faglegri verkefnastjórnun í framkvæmdaverkum.


Með markvissri og faglegri stjórn aukum við líkurnar á að verkefni nái markmiðum sínum, minnkum hættuna á mistökum og tryggjum meiri gæði fyrir verkkaupa, iðnaðinn og samfélagið í heild," segir Jónas.

„Oft er talað um að til að bæta gæði bygginga sé þörf á góðu eftirliti, sem er gott. En það skiptir ekki síður máli að ferlið í hönnun og framkvæmd sé gert faglega. Í raun snýst verkefnastjórnun um að skipuleggja og undirbúa, til þess höfum við ferla. En við erum aðallega að þjálfa okkur upp í að bregðast rétt við í aðstæðum sem upp koma. Og til þess þurfum við verkfærakistu og þjálfun. Svona ráðstefna er einn lítill hlekkur í þeirri viðleitni," segir hann.

Ræðumenn á ráðstefnunni eru Stephen DeVito frá Procon Consulting, Ólafur Daníelsson frá ÓD ráðgjöf, Andrea S. Rutledge, Construction Management Association of America, Jón Kolbeinn, framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Reitum, og Vala Björnsdóttir, partner og verkefnastjóri hjá JTV. Ráðstefnustjóri er Brynja Þorgeirsdóttir.

Hann bætir við að markmiðið sé að gera framkvæmdastjórnun að enn öflugra fagi á Íslandi og styrkja þannig gæði, skilvirkni og áreiðanleika í öllum framkvæmdum. Að auka vitundavakningu um nauðsyn faglegrar stjórnunar. Jónas segir að einnig þurfi að auka þekkingu stjórnenda, hafa fleiri tæki og tól í verkfærakistunni.

21 January 2026
JTV fyrir hönd Vigdísarholts ehf, kt. 580214-1180, óskar eftir tilboðum í verkið: "Sunnuhlíð - Lundur stækkun" Verkið felur í sér að endurnýja og stækka deildina Lund á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Stærð deildarinnar er um 400 m2. Verkið felur m.a. í sér eftirfarandi verkþætti: • Niðurrif á útvegg og þaki sem og öllu innandyra auk múrbrots og fræsinga fyrir nýjum lögnum og undirstöðum • Jarðvinnu fyrir stækkun húss og endurnýjun lagna í jörðu • Uppbyggingu nýrra burðarvirkja og tengingu við núverandi hús • Nýjar lagnir, raflagnir og loftræsingu auk tengingar á sprinklerkerfi • Allan frágang utan- og innanhúss Full starfsemi verður á hjúkrunarheimilinu meðan á framkvæmdum stendur og skal verktaki taka fullt tillit til viðkvæmrar starfsemi þess. Verklok eru 27. nóvember 2026. Hér er um almennt útboð að ræða sbr. lög um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) þar sem ótilteknum fjölda er með auglýsingu gefinn kostur á að gera tilboð. Útboðið er auglýst innanlands. Gögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 19. janúar 2026. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Fjalar Hauksson hjá JTV ehf með því að senda tölvupóst á netfangið fjalar@jtv.is og gefa upp nafn, nafn fyrirtækis, síma og netfang og fá í kjölfarið aðgang að útboðsgögnum á verkefnavef verkefnisins. Fyrirspurnir merktar tilboðinu skulu sendar umsjónarmanni útboðs í gegnum verkefnavef verkefnisins eða í tölvupósti á netfangið fjalar@jtv.is . Fyrirspurnir skulu berast í síðasta lagi 16. febrúar 2026. Fyrirspurnir og samhljóða svör verða birt á verkefnavef innan þess frests sem tilgreindur er í útboðs- og samningsskilmálum og teljast þau hluti útboðsgagna. Tilboðum skal skila rafrænt á verkefnavef verkefnisins fyrir kl 14:00 þann 24. febrúar 2026.
7 November 2025
Eins og við vitum er grunnur að öllum byggingum góðir hönnuðir, ekki er hægt að treysta á tilviljanir – sama gildir um framkvæmdastjórnun.
20 May 2025
Leikskólinn var settur saman á aðeins sex dögum – opnaði í byrjun apríl 2024
Sjá allar fréttir